Sérhver maður sem býr á Íslandi eða dvelur hér á ákveðnu tímabili vegna vinnu sinnar eða náms hefur rétt til þess að auðkenna sig. Og raunar er það svo að um þessi réttindi er fjallað í íslenskum stjórnsýslulögum, þar sem þau eru nefnd kennitala.
Ef um ferðamenn er að ræða, geta þeir vísað til vegabréfs síns eða ökuskírteinis ef þeir þurfa að auðkenna sig af einhverri ástæðu. Auðkenningin snýst um mannréttindi, er grundvallaratriði og ómissandi í athöfnum daglegs lífs.
Utan kerfisins
En þetta eru ekki sjálfssögð réttindi eins og fólk sem sækir um alþjóðlega vernd hérlendis, eða svokallaðir „hælisleitendur“, veit svo vel. Auðvitað fær fólk á flótta kennitölu. Það er utan kerfisins á Íslandi. Þegar slík manneskja er svo heppin að öðlast dvalarleyfi hérlendis til bráðabirgða og vinnu fær hún fyrst gefna út kennitölu, sem samt er bara til bráðabirgða. Reglugerð um útlendingalög kveður á að „Umsækjandi (um hæli) skal afhenda með umsókninni vegabréf eða önnur ferðaskilríki sem hann hefur í fórum sínum“ (88 gr. 1. mgr.) en: „Umsækjandi um hæli […] skal eins fljótt og verða má eftir komu til landsins, fá í hendur skráningarskírteini hælisumsækjanda…“ (92 gr. 1. mgr.)
Það er hins vegar ekki alltaf farið eftir hinu síðarnefnda. Staðreyndin er sú að fólk á flótta verður að afhenda Útlendingastofnun skjöl sem það hefur með sér, en fær ekkert skírteini um hæli. Næstum enginn sem dvelur í Fit hosteli hefur skírteini sem auðkennir hann, þó að viðkomandi hafi verið hérlendis hálft ár eða jafnvel lengur.
Þetta getur skapað margvísleg vandræði, jafnt stór sem smá. Það getur verið vesen að fara inn á skemmtistað ef maður getur ekki framvísað skírteini. Einnig er mér minnisstætt þegar strákur frá Afríku lenti í bílslysi og kalla þurfti á sjúkrabíl. Þá kom í ljós að enginn gat staðfest hver hann var eða hvar hann bjó. Sem betur fer var slysið ekki alvarlegt en það gæti gerst í dag eða á morgun. Hver á að bera ábyrgð á slíku tilfelli?
Auðkennisleysi fólks á flótta er ekkert nýtt mál. Við áhugafólk um flóttafólk höfum margsinnis bent Útlendingastofnun á vandamálið og krafist útbóta. Það tók ár þar til allir fengu skírteini. Við vorum ánægð í bili en núna, nokkrum árum seinna hef ég tekið eftir að flest flóttafólk sem ég þekki hefur ekki fengið skírteini aftur.
Hvað er svona erfitt við að það gefa út auðkennisskírteini fyrir fólk á flótta á Íslandi sem staðfestir hvert það er (a.m.k. segist vera)? Eða eru réttindi fólks á flótta svo ómerkileg að það megi ekki einu sinni auðkenna sig sem manneskju, sem sjálfa sig. Ég óska þess að allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fái auðkennisskíreini fljótt og vel eins og reglugerðin kveður á um.
(Prestur innflytjenda, 15. október 2014 FBL.)