Umdeild tillaga um samskipti menntastofnana Reykjavíkurborgar við kirkjuna, sem meirihluti mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt, virðist taka gildi um áramótin næstu án mikilla breytinga. Mér finnst sorglegt að mannréttindaráðið skuli ekki hafa hlustað á þær fjölmörgu raddir sem gerðu athugasemd við fyrstu tillöguna.
Ég er þeirrar skoðunar að tillagan gangi of langt þrátt fyrir að ég skilji tilgang hennar. Ég óskaði eftir því að ráðið myndi draga tillöguna til baka og eiga frekara samtal við þá sem að málinu koma og hafa aðrar skoðanir en meirihluti ráðsins. Þá væri hægt að koma betri tillögu, tillögu þar sem framtíðarsýnin væri skýrari. Ég skil ekki hvers vegna mannréttindaráðið vildi ekki (og vill ekki) reyna að ná samkomulagi á milli allra málsaðila til þess að skapa frið um málið.
En nú virðist mér það nokkuð fyrirsjáanlegt að þegar breytingar verða á meirihluta og minnihluta í borgarstjórn þá verði horfið frá þessari tillögu sem nú hefur verið samþykkt, þar sem ágreiningurinn er og verður enn til staðar. Ég held að skortur á stöðugleika í stefnumótum grunn- og leikskólans sé skólabörnum í óhag.
Umræðan um samskipti milli skóla og kirkju (og annara trúfélaga eða félaga með ákveðna lífsskoðun) á ekki að vera eins og„glíma“ á milli trúaðra og þeirra sem ekki trúa. Ég er þjónandi prestur en samt er ég sammála þeirri grunnhugmynd sem birtist í tillögunni, sem er að draga línu milli skólastarfsemi og starfsemi trúfélaga. Samt er það ekki auðgert. Við getum sett mörk á trúarlega starfsemi en ekki á „trúarlífið“ sjálft. Það sama á við um fólkið sem tilheyrir ekki kristinni kirkju. Málið á skilið að vera vel rætt þeirra vegna.
Prestar og annað kirkjufólk gerði talsverðar athugasemdir við tillögu mannréttindaráðs. Þau voru búin að leggja fram nægilegan rökstuðning um að prestar eigi að aðgang hafa að skólum. En eftir því sem ég fæ best séð, var aðeins örlítið tæpt á líðan þeirra barna sem ekki eru í kirkjunni. Þetta er að mínu mati annmarki á kirkjunni okkar. Ég var að velta því fyrir mér af hverju þessi annmarki er?
Ég giska á að líklegast sé það vegna þess að flestir prestar kirkjunnar hér á landi viti ekki hvernig það er að vera minnihluti í trúarlegu umhverfi. Ég upplifði slíka stöðu í heimalandi mínu og því langar mig einfaldlega að segja þetta: Það er mjög óþægilegt að verða að vera þátttakandi í trúarlegum athöfnum ef maður trúir ekki. Það er leiðinlegt að verða að hlusta á trúarlegar áskoranir ef maður trúir ekki. Það skiptir engu máli hvort viðkomandi trúarbrögð teljast góð eða slæm. Slíkt gæti næstum fallist undir andlega kúgun.
Mér virðist sem prestar hér á landi vanmeti þennan tilfinningalegan þátt og hvaða áhrif hann gæti haft á líðan barna í minnihlutahópum. Ég vona að þetta lagist á næstunni en þessi atriði þurfum við að taka inn í umræðunni sem og fleiri sem falla undir tillitssemi. Mér finnst að umræðunni sé ekki lokið og við ættum að taka hana upp aftur og endurskoða tillöguna til þess að ná til stöðugleika skólalífs barna okkar.
(Prestur innflytjenda; 17. desember 2010 FrB.)