Framkvæmdastjórn ESB lýsti í síðustu viku yfir vilja sínum um að breyta móttökukerfi flóttamanna innan ESB. Tillagan er sú að jafna álaginu á móttöku flóttamanna með því að dreifa ábyrgðinni á meðal aðildarríkjanna. Til þess var lagt til nokkurs konar kvótakerfi sem væri í samræmi við íbúafjölda, efnahagsstöðu og sitthvað fleira hverrar þjóðar.
Ef þessi tillaga verður samþykkt þá þýðir það talsverðar breytingar á núgildandi Dyflinnarreglu sem kveður á um að fyrsta móttökuríki flóttamanns skuli bera ábyrgð á máli viðkomandi. Þetta eru tíðindi.
Það er gert ráð fyrir að nokkur ríki verði á móti tillögunni og við verðum að fylgjast með þróun mála á næstunni. Ég vil hins vegar benda á þá staðreynd að slík tillaga um breytingar á Dyflinnarreglugerðinni hefur verið lögð fram af framkvæmdastjórn ESB. Það sýnir ákveðna viðurkenningu á göllum núverandi kerfis.
Gallinn er nefnilega ekki bara einn, heldur eru þeir fjölmargir. Einn af þeim er einmitt hið mikla ójafnvægi á milli landa og álag vegna móttöku flóttafólks. Samkvæmt upplýsingum Flóttamannastofnunar SÞ fékk Ítalía 63.700 umsóknir um hæli árið 2014 á Ítalíu en aldrei hefur jafn mikill fjöldi flóttamanna leitað til Ítalíu.
Svíum bárust 75.100 umsóknir og það er fjórði mesti fjöldinn á meðal þróaðra ríkja. Hlutfall flóttamanna miðað við íbúafjölda í Svíþjóð er 24,4 hverja þúsund íbúa sem er hæsta tala í heiminum.
Í þessu samhengi hugsa ég til fjögurra vina minna frá Nígeríu og Gana. Þeir eru allir „Dyflinnar-flóttamenn“ og eru búnir að eyða tveimur til þremur árum á Íslandi. Mál þeirra hafa samt ekki verið tekin til skoðunar hér vegna Dyflinnarreglugerðarinnar. Þrír af þeim komu hingað frá Ítalíu og sá fjórði kom frá Svíþjóð.
Er rétt ákvörðun að senda þá til baka til Ítalíu eða Svíþjóðar vegna Dyflinnarreglunnar einmitt þegar umræða um jöfnun álags og hugsanlegar breytingar á Dyflinnarkerfinu eru að eiga sér stað? Nei, slíkt er algjörlega á móti þeirri stefnu sem Evrópuríkin eru nú að leita eftir – sanngjarnari móttöku flóttamanna.
Ég vil því skora á stjórnvöld að stöðva allar brottvísanir flóttafólks á grundvelli Dyflinnarreglunnar á meðan þessi mál eru í skoðun í Evrópu og að mál þeirra flóttamanna, sem hingað eru komnir, verði tekin upp á Íslandi til efnislegrar meðferðar, ekki síst mál vina minna fjögurra.
(Prestur innflytjenda, 21. maí 2015 FrB.)