Miklar breytingar eru nú að verða á móttöku fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Töluverðar breytingar urðu á lögum um útlendinga síðastliðið vor. Meðal þess sem breyttist er að sérstök kærunefnd útlendingamála sér nú um kærumál flóttafólks og einnig á að stefna að ekki taki lengur en 90 daga að úrskurða í hverju máli. Það er von mín að þessar breytingar reynist jákvæðar fyrir flóttafólk.
Mig langar hins vegar að benda á þá staðreynd að það flóttafólk sem kom hingað til lands áður en lögin tóku gildi er í sömu stöðu og áður og nýtur ekki nýjunganna í kerfinu.
Meðal þess er fólk sem hefur verið í biðstöðu í um tvö til þrjú ár. Ég þekki til átta sem eru í þeirri stöðu og þar af eru fimm þeirra með mál sín fyrir héraðsdómstóli en öll snúa þau að Dyflinnarreglugerðinni. Dómstóllinn dæmir aðallega um hvort hælisumsóknir hvers og eins þeirra eigi að vera skoðaðar efnislega á Íslandi, eða ekki – en ekki um hvort þeir eigi að fá vernd. Dómar munu falla á næstunni.
Ég veit ekki hvernig mál munu ráðast en ég veit að þessi ár sem fólkið bíður hér eru því tilgangslaus. Tvö til þrjú ár eru langur tími í bið ef maður er hvorki án vinnu og getur ekki farið í nám – og getur í raun ekki aðhafst neitt. Sumir hafa svo forsögu annars staðar frá og hafa eytt tíma í öðru landi, jafnvel lengri tíma en á Íslandi. Einn af flóttamönnunum sem hér dvelja eyddi t.d. níu árum í landi þar sem hann hafði sótt um vernd fyrst og annar fimm árum – báðir án þess að geta orðið að venjulegum borgurum. Myndir þú vilja vera í þessum sporum?
Bjargræði
Eins og sést í hinni nýju stefnu yfirvalda hérlendis efast enginn um mikilvægi þess að umsókn um alþjóðlega vernd skuli verða afgreidd almennilega innan þolanlegs biðtíma. En ef yfirvöld viðurkenna mikilvægi þess, hvernig líta þau þá á manneskjur sem hafa eytt tveimur til þremur árum hér nú þegar og mál þeirra hafa ekki einu sinni verið skoðuð efnislega? Eiga þeir ekki skilið einhvers konar bjargræði miðað við þennan óvenjulega langa biðtíma?
Mér skilst að dómstóllinn sé bundinn við lögin, að sjálfsögðu, og réttlæti hans byggist fyrst og fremst á lögfræði. Það er hins vegar mín skoðun að framkvæmdarvaldið geti haft að leiðarljósi mannúðleg sjónarmið. Það þýðir að horfa á manneskjuna sem miðjuna í hverju máli, hina lifandi manneskju.
Þá finnst mér eðlilegt að líta á mál þeirra í heild, aðstæður í heimalandi þeirra, margra ára óvissu í fyrsta komulandi og svo biðtíma á Íslandi fremur en fyrst og fremst á Dyflinnarreglugerðina – sem er alls ekki kjarni mála þeirra.
Ég vil skora á yfirvöld að skoða mál þeirra með mannúð að leiðarljósi og taka mál þeirra sem um ræðir til efnislegrar meðferðar, óháð hvernig dómar falla í héraðsdómi.
(Prestur innflytjenda, 12. janúar 2015 FBL.)